Heimsending matar fellur niður en neyðarskýli opna

Ragnar Erling Hermannsson, heimilislaus maður, birti á Facebook síðu sinni …
Ragnar Erling Hermannsson, heimilislaus maður, birti á Facebook síðu sinni myndband þar sem hann gagnrýndi borgina fyrir að hafa lokað gistiskýlunum í morgun. Þau hafa verið opnuð á ný og verða öll opin allan sólarhringinn í dag og á morgun. Skjáskot af myndbandi

Heimsending matar á vegum Velferðarsviðs Reykjavíkur fellur niður í dag, vegna veðurs. Hefst hún aftur á morgun, um leið og færð leyfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Neyðarskýlin þrjú í Reykjavík eru öll opin í dag. Þá hefur neyðaráætlun í málflokki heimilislausra, með miklar og flóknar þjónustuþarfir, verið virkjuð vegna veðurs. 

Gistiskýlin verða opin alla helgina

Ragnar Erling Hermannsson, heimilislaus maður, birti á Facebook síðu sinni myndband þar sem hann gagnrýndi borgina fyrir að ætla að loka gistiskýlunum í morgun. Nú liggur fyrir að þau verði öll opin allan sólarhringinn í dag og á morgun.

Soffía Hjördís Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og teymisstjóri í málaflokki heimilislausra segir að neyðaráætlun í málaflokki heimilislausra taki við af litakóðuðum viðvörunum veðurstofunnar, og því hvort aukin hætta sé á að þjónustuþegar verði fyrir ofkólnun vegna kulda og snjóþunga. 

Það var mat teymisins í morgun og því tekin ákvörðun um að virkja neyðaráætlunina og tryggja mönnun til þess að opna skýlin.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem Ragnar birti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert