„Unnið frá morgni til kvölds alla hátíðardagana“

Vegagerðin.
Vegagerðin. mbl.is/sisi

„Vegagerðin hefur lagt allt kapp á að veita eins góða þjónustu og mögulegt er með tilliti til veðurs,“ segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, en vegalokanir síðustu daga hafa verið gagnrýndar þá sérstaklega af ferðaþjónustunni. 

Í tilkynningunni segir að öll tiltæk tæki hafa verið notuð undanfarna daga til snjómoksturs „og starfsfólk Vegagerðarinnar og verktakar á hennar vegum unnið frá morgni til kvölds alla hátíðardagana“.

Það sé markmið stofnunarinnar að halda vegum opnum eins og kostur sé en loka ef ekki er hægt að tryggja öryggi fólks og koma í veg fyrir slys. 

Aðstæður á Suðurlandi voru krefjandi um jólin vegna slæms veðurs …
Aðstæður á Suðurlandi voru krefjandi um jólin vegna slæms veðurs og mikillar ofankomu. Ljósmynd/Landsbjörg

Funda með Samtökum ferðaþjónustunnar

Ef lokað er of seint eykur það hættu á að bílar festist og lengri tíma tekur að opna að nýju. Vegagerðin hefur skilning á þörfum ferðaþjónustunnar og mun strax á nýju ári funda með Samtökum ferðaþjónustunnar til að fara yfir hvaða leiðir eru færar til að auka þjónustu við þessa mikilvægu atvinnugrein.

Þá segir að aðstæður á Suðurlandi hafi verið krefjandi um jólin vegna slæms veðurs og ofankomu. Sjaldan hefur verið jafnmikið fannfergi í Vík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert