Ferðamönnum bjargað af Ketillaugarfjalli

Að sögn björgunaraðila voru mennirnir vel á sig komnir en …
Að sögn björgunaraðila voru mennirnir vel á sig komnir en ekki nógu vel búnir til vetrar fjallaferða. Ljósmynd/Björgunarfélag Hornafjarðar

Björgunarsveitarfólk frá Höfn aðstoðaði tvo hollenska ferðamenn niður af Ketillaugarfjalli í dag. 

Hjálparbeiðni barst frá ferðamönnunum sem höfðu lagt í göngu á Ketillaugarfjall, sem er upp af Nesjum, rétt utan Hafnar í Hornafirði, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Ferðamennirnir höfðu lagt bíl sínum við söluskálann í Nesjum og gengið þaðan, en þeir fóru ekki hefðbundna gönguleið.

Þegar þeir voru komnir nokkuð hátt í fjallið, gengu þeir inn á svæði þar sem harður snjór og svellalög voru, og þeir treystu sér ekki lengra og óskuðu aðstoðar.

Ljósmynd/Björgunarfélag Hornafjarðar

Ekki búnir til vetrar fjallaferða

Björgunarsveitarfólk frá Höfn fór á staðinn og hélt á fjallið, en í fyrstu var staðsetning þeirra ekki nákvæm.

Mennirnir fundust svo hátt í fjallinu rétt fyrir klukkan 17. Björgunarfólk setti á þá mannbrodda, tryggði þá í línu og fylgdi niður af fjallinu.

Mennirnir voru vel á sig komnir en ekki nógu vel búnir til vetrar fjallaferða. Aðgerðum var lokið rétt fyrir klukkan 18. 

Ljósmynd/Björgunarfélag Hornafjarðar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert