Eitt fjölmennasta mót frá upphafi

Eliza Reid spáir í spilin í Hörpunni í gær.
Eliza Reid spáir í spilin í Hörpunni í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Forsetafrúin Eliza Reid setti bridgehátíð í Hörpunni í gær sem ber yfirskriftina Reykjavik Bridgefestival og er mótið eitt það fjölmennasta sem haldið hefur verið hér á landi. 

Yfir 700 spilarar eru skráðir til þátttöku samkvæmt tilkynningu frá mótshöldurum. Um er að ræða eitt fjölmennasta bridgemót sem hefur verið haldið á Íslandi frá upphafi og hafa skráningar farið fram úr bjartsýnustu vonum að sögn Matthíasar Imsland, framkvæmdastjóra Reykjavik Bridgefestival og Bridgesambands Íslands. Mörg þekkt erlend pör eru meðal keppenda og sterkustu pör Íslands eru einnig með.

Spilamennsku á fyrri keppnisdeginum í tvímenningskeppni Bridgehátíðar lauk á miðnætti í gærkvöld en þá höfðu verið spilaðar átta umferðir af 20.

Íslensku landsliðsmennirnir, Ómar Olgeirsson og Stefán Jóhannsson, eru í fyrsta sæti með rúmlega 63% skor. Parið Sabine Auken og Roy Welland frá Þýskalandi eru í öðru sæti en þau hafa oft komið á Bridgehátíð og jafnan verið í toppbaráttu. Þau eru með tæplega 62% skor en íslensk-þýska parið Júlíus Sigurjónsson og Frederik Wrang er í þriðja sæti með 61% skor.

Staða tíu efstu para eftir keppni gærdagsins:

1. 63,7% Ómar Olgeirsson - Stefán Jóhannsson
2. 61,9% Sabine Auken - Roy Welland
3. 61.0% Júlíus Sigurjónsson - Frederic Wrang
4. 60,8% Lars Kennethsson - Per Jansson
5. 60,3% Hjördís Eyþórsdóttir - Janice Seamon-Molson
6. 60,1% Jostein Sørvoll - Svein Arild Naas Olsen
7. 60,0% Bragi Hauksson - Helgi Jónsson
8. 59,2% Andrew McIntosh - Tom Paske
9. 59,1% Heimir Tryggvason - Gísli Tryggvason
10. 59,0% Maggie Knottenbelt - David Gold

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert