Staða sakborninga áfram sú sama

Annað manndrápið átti sér stað á Blönduósi, en hitt á …
Annað manndrápið átti sér stað á Blönduósi, en hitt á Ólafsfirði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Rannsókn stendur enn yfir vegna manndrápsmálanna tveggja, annars vegar á Ólafsfirði og hins vegar á Blönduósi. Vonir voru bundnar við það að unnt yrði að ljúka rannsókn nú um mánaðarmótin en ljóst er að það mun ekki takast. 

Að sögn Bergs Jónssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns yfir rannsóknardeild hjá embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, hefur staðan lítið breyst frá því að mbl.is fjallaði síðast um rannsóknina, en staða sakborninga er til að mynda sú sama. 

Þann 10. janúar greindi mbl.is frá því að lögreglan væri háð því að gögn frá öðrum stofnunum berist henni áður en lokavinna rannsóknanna gæti átt sér stað. Meðal annars var beðið eftir endanlegum skýrslum um niðurstöðu rannsókna sem framkvæmdar voru við réttarkrufningu í málunum. 

Þrír sakborningar

Að morgni þriðja októ­ber í fyrra voru fjög­ur hand­tek­in eft­ir að til­kynn­ing barst um að karl­maður hafi verið stung­inn með eggvopni á Ólafs­firði. Þrjú þeirra hafa rétt­ar­stöðu sak­born­inga; tveir karl­menn og ein kona. Maður sem grunaður er um að hafa orðið mann­in­um að bana var látinn laus í nóvember. 

Tveir hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins á Blönduósi frá því ág­úst í fyrra, eða maður­inn sem varð fyr­ir árás­inni og son­ur hans, sem er tal­inn hafa ráðið niður­lög­um árás­ar­manns­ins. Tvennt lést í árás­inni, eig­in­kona manns­ins og árás­armaður­inn sjálf­ur, sem hafði þá náð að skjóta á hjón­in með fyrr­greind­um af­leiðing­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert