Hagavagninn rís senn úr öskunni

Hagavagninn.
Hagavagninn. mbl.is/Óttar

Hagavagninn, sem varð fyrir allverulegu tjóni í bruna fyrir tveimur vikum, verður opnaður aftur bráðlega, að sögn Jóhanns Guðlaugssonar, sem rekur hann. „Þetta var náttúrlega svolítið tjón þannig að það tekur einhvern tíma að koma þessu aftur í gang. Það mun örugglega taka tvo til þrjá mánuði,“ segir hann en talið er að kviknað hafi í út frá djúpsteikingarpotti.

Aðspurður kveðst Jóhann vongóður um að tryggingar nái utan um mestan kostnaðinn. „Það er ekki alveg komið á hreint en ég er vongóður um að það verði í lagi.“

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert