Aukið samstarf vegna barna í viðkvæmri stöðu

Við undirritun í dag. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, Halla …
Við undirritun í dag. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB og Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ljósmynd/Lögreglan

Reykjavíkurborg, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hafa mótað sameiginlegt verklag til að draga úr líkum á auknu og alvarlegu ofbeldi meðal barna og stuðla að farsæld fyrir börn í viðkvæmri stöðu.

Samstarfsyfirlýsing þess efnis var undirrituð í dag. 

Verður unnið sameiginlega að innleiðingu þess á starfssvæði Suðurmiðstöðvar Reykjavíkurborgar og mun reynslan af innleiðingunni verða nýtt til að þróa samstarf í öðrum borgarhlutum í kjölfarið.

Í tilkynningu segir að sameiginlegt verklag muni meðal annars fela í sér:

  • bætta eftirfylgni skóla, félagsþjónustu, barnaverndar og lögreglu vegna barna í kjölfar tilkynninga um heimilisofbeldi til lögreglu, 
  • fastan tengilið barnaverndar við Suðurmiðstöð, 
  • reglulega tilkynningafundi lögreglu og barnaverndar, 
  • auk þess sem unnið er að innleiðingu farsældarlaganna með ráðningu málastjóra og tilnefningu tengiliða hjá lykilstofnunum.  

Verkefnið var styrkt af bæði félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra.   

Börn í viðkvæmri stöðu eru börn yngri en 18 ára sem eru þolendur og gerendur í ofbeldismálum og falla undir tilkynningarskyldu almennings samkvæmt ákvæðum  barnaverndarlaga um að:

  • a) búa við óviðunandi uppeldisaðstæður,
  • b) verða fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
  • c) stofna heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert