Fjögurra bíla árekstur og einn á bráðamóttöku

Einn var fluttur á bráðamóttöku en er ekki sagður alvarlega …
Einn var fluttur á bráðamóttöku en er ekki sagður alvarlega slasaður. Ljósmynd/Aðsend

Einn var fluttur á bráðamóttöku eftir að fjórir bílar skullu saman á Sæbraut. Slökkviliðið er enn að störfum að sögn vaktmanns slökkviliðsins en útlit fyrir að sá sem fluttur var á bráðamóttöku sé ekki alvarlega slasaður. 

Enn á eftir að draga bílana í burtu og ástæða er til að hvetja vegfarendur til að fara varlega í kringum slysstað.  

Frá vettvangi slyssins í dag.
Frá vettvangi slyssins í dag. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert