Kalla út liðsauka vegna sinubruna í Hafnarfirði

Frá vettvangi sinubrunans í Straumsvík.
Frá vettvangi sinubrunans í Straumsvík. mbl.is/Arnþór

Sina brennur á jörðinni Streng vestan við álverið í Straumsvik. Slökkviliðið hefur glímt við sinubrunann í um klukkustund og kalla hefur þurft út liðsauka til að glíma við eldinn. 

Að sögn vaktmanns Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu gengur illa að eiga við eldinn og aðstæður erfiðar þar sem sinueldurinn er umvafinn hrauni auk þess sem gras er mjög þurrt. 

Bærinn Óttarsstaðir er á jörðinni við Streng og er mörgum kunnur sem eiga leið um Reykjanesbraut.   

Erfiðlega gengur að ráða niðurlögum eldsins.
Erfiðlega gengur að ráða niðurlögum eldsins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert