Skjálftahrina suður af Reykjavík

Hrinan á upptök sín norð-norðaustur af Selvogi.
Hrinan á upptök sín norð-norðaustur af Selvogi. Kort/map.is

Undanfarna daga hafa litlir skjálftar riðið yfir suð-suðvestur af Bláfjöllum, norðan Selvogs. Segja má svo að hrina smáskjálfta hafi hafist þar í morgun og svo haldið áfram síðdegis og í kvöld. 

Auk þessara hræringa varð skjálfti af stærðinni 2,7 við Bláfjöll klukkan 15.20 í dag, skammt frá Þríhnúkagíg.

„Þetta er örlítið meiri virkni en venjulega, en við erum ekki með einhverjar rosa áhyggjur,“ segir Bjarki Fri­is, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Hann segir að skyldu skjálftarnir fara yfir 3 að stærð gæfi það efni til að fylgjast enn betur með svæðinu. Eins og er þykir þó ekki ástæða til að hafa áhyggjur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert