Erfitt fyrir björgunarfólk að komast að slysstað

Slysið varð í miklu brattlendi.
Slysið varð í miklu brattlendi. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarfólk við Fagrafell er nú að ganga frá á slysstað eftir að tveir göngumenn óskuðu eftir aðstoð klukkan 2 í nótt. 

Mennirnir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðsheiði við Eyjafjallajökul er annar féll niður nokkurn spöl og hinn varð í sjálfheldu. Sá síðari komst ekki niður til þess sem féll.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að björgunarsveitir af Suðurlandi voru boðaðar á hæsta forgangi í verkefnið, og var fyrsta björgunarfólk komið á slysstað um klukkan 02:20.

Mennirnir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðsheiði við Eyjafjallajökul.
Mennirnir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðsheiði við Eyjafjallajökul. Ljósmynd/Landsbjörg

Slysið varð í miklu brattlendi og erfitt var fyrir björgunarfólk að komast að slysstað. Undanfarar, sérhæfðir í fjallabjörgun,frá höfuðborgarsvæðinu voru því kallaðir út ásamt því að óskað var eftir þyrlu frá Landhelgisgæslunnar.

Fyrsta björgunarfólk komið á slysstað um klukkan 02:20.
Fyrsta björgunarfólk komið á slysstað um klukkan 02:20. Ljósmynd/Landsbjörg

Tryggja þurfti björgunarfólk á svæðinu með siglínum og færa þann sem slasaðist, svo öruggara væri að komast að þeim sem var fastur ofar í hlíðinni.

„Fljótlega varð ljóst að einfaldast væri að komast að þeim sem var í sjálfheldu úr þyrlu, og þegar þyrla kom á svæðið, sem var austur á Egilstöðum, var sá sóttur, og síðan sá slasaði hífður um borð í þyrlu,“ segir í tilkynningunni.

Sá slasaði var hífður um borð í þyrluna.
Sá slasaði var hífður um borð í þyrluna. Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert