Varðskipið komið í Neskaupstað

Varðskipið Þór. Mynd úr safni.
Varðskipið Þór. Mynd úr safni. Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands

Varðskipið Þór er komið í Neskaupstað en áhöfnin batt landfestar laust fyrir miðnætti. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Um borð í varðskipinu eru viðbragðsaðilar og vistir en landleiðin til Neskaupstaðar er ófær vegna fannfergis.

Gert er ráð fyrir að 20 manns gisti í varðskip­inu í nótt.

Víða ófært

Snjóflóð féllu í Neskaupstað og á Seyðisfirði fyrr í dag. Talsvert eignatjón varð og slasaðist fólk þegar að eitt flóð féll í byggð og á fjölbýlishús.

Stór hópur björgunarsveitarmanna hefur setið fastur á Egilsstöðum í dag að bíða þess að komast áfram en ófært er víða á Austurlandi vegna fannfergis.

Í kvöld var loks hægt að ferja björgunarsveitarfólk yfir til Seyðisfjarðar þar sem varðskipið var komið til að ferja það áfram á Eskifjörð og í Neskaupstað. 

Þá var barnshafandi kona flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrr í kvöld frá Neskaupstað til Egilsstaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert