Tveggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Áreksturinn varð á Vesturlandsvegi. Mynd úr safni.
Áreksturinn varð á Vesturlandsvegi. Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tveggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi við Leirvogsá fyrr í kvöld. Bílstjórarnir tveir voru fluttir á slysadeild.

Útkall vegna árekstursins kom til slökkviliðsins klukkan 19.25 í kvöld.

Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri slökkviliðs hjá aðgerðarstjórn. Bílstjórarnir hafi sloppið vel, ekki hafi verið um alvarlega áverka að ræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert