Nær 600 stjórnendur hjá Reykjavíkurborg

Tæplega 600 stjórendur hafa fengið boð í Hörpu.
Tæplega 600 stjórendur hafa fengið boð í Hörpu. mbl.is/Hjörtur

Nær 600 stjórnendur voru boðaðir á stjórnendafund Reykjavíkurborgar sem fram fer í Hörpu í næstu viku og fjöldi starfsmanna hefur vaxið um 25% frá árinu 2017.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks í borginni, og mbl.is hefur fengið staðfest með gögnum. 

Alls störfuðu 11.703 hjá þeim hluta borgarinnar sem fellur undir A hluta starfseminnar, eða það sem snýr að daglegum rekstri hennar ef  miðað er við tölur desember á síðasta ári. Borgarstarfsmenn voru 9.346 árið 2017 og nemur það ríflega 25% aukningu á fjölda starfsmanna. Á sama tíma hefur íbúum í Reykjavík fjölgað um 10%. 


Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert