Urðun hræjanna lokið

Urðunin hófst fyrir hádegi í dag.
Urðunin hófst fyrir hádegi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um fimmleytið í dag lauk urðun á fjár­stofn­in­um frá Syðri-Urriðaá í Miðfirði sem skor­inn var niður á þriðjudag vegna riðu. Urðunin hófst fyrir hádegi í dag.

Þetta staðfestir Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, í samtali við mbl.is. 

Allt gekk samkvæmt áætlun

Sigurborg vildi ekki gefa upp hvar fjárstofninn var urðaður þar sem enn er verið að ganga frá staðnum.

„Það þarf að ganga frá urðunarstað og við þurfum vinnufrið til þess,“ segir Sigurborg.

Að sögn Sigurborgar gekk urðunin vel. Allt gekk samkvæmt áætlun.

„Það gekk mjög vel. Það voru góðar aðstæður til urðunar. Þetta gekk alveg samkvæmt áætlun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert