Héraðsskjalasafnið lagt niður

Héraðsskjalasafn Kópavogs verður lagt niður og Kópavogsbær hyggst fara í samvinnu við Þjóðskjalasafn um að taka við safnkostinum. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Kópavogs í dag. Þar voru tillögur bæjarstjóra að nýjum sóknarfærum í starfsemi menningarhúsa Kópavogsbæjar samþykktar, eins og það er orðað á vef bæjarins.

„Meðal þess sem felst í tillögunum er frekari samþætting á starfsemi menningarhúsanna samfara því sem fjármunum verður forgangsraðað með öðrum hætti. Gert er ráð fyrir nýju upplifunar- og fræðslurými á fyrstu hæð Bókasafns Kópavogs sem tekið verður í notkun á árinu 2024. Rík áhersla verður lögð á viðburði, sýningar og fræðslu þar sem bókmenntir, myndlist, náttúruvísindi og tónlist mætast í einu og sama rými sem miðar við börn og fjölskyldur,“ segir í tilkynningu bæjarins. Þar kemur jafnframt fram að stöðugildum menningarhúsa í bænum fækkar úr 33 í 29.

„Safneign Náttúrufræðistofu, fræðsla, miðlun og rannsóknir á henni mun færast undir forstöðumann Gerðarsafns. Önnur rannsóknarstarfsemi á Náttúrufræðistofu og vöktun á vatnalífríki verður lögð niður og færð öðrum í samstarfi við Kópavogsbæ,“ segir þar ennfremur.

„Fyrirhugaðar breytingar fela í sér mikil tækifæri, menningarhúsin eru flaggskip bæjarins og mikilvægt að starfsemi þeirra sé í takt við tímann. Við breytingarnar verður lögð áhersla á að auka enn frekar aðdráttarafl menningarhúsanna með því að fara nýjar leiðir og forgangsraða fjármunum betur í þágu bæjarbúa.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert