Eldhúsdagur á Alþingi

Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld.
Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Árlegar eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld og hefst útsending klukkan 19.40. Umræðurnar skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Röð flokkanna í báðum umferðum verður þessi: Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Miðflokkurinn.

Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi.

Ræðumenn flokkanna

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrri umferð Kristrún Frostadóttir, þriðji þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni Oddný G. Harðardóttir, áttundi þingmaður Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Flokks fólksins eru Inga Sæland, sjöundi þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð, og Guðmundur Ingi Kristinsson, níundi þingmaður Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrri umferð, og Bryndís Haraldsdóttir, sjötti þingmaður Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Ræðumenn Pírata eru í fyrri umferð Andrés Ingi Jónsson, tíundi þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og í seinni umferð Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, sjötti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Framsóknarflokkinn tala Ingibjörg Isaksen, fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, og Jóhann Friðrik Friðriksson, fimmti þingmaður Suðurkjördæmis, í þeirri seinni.

Ræðumenn Viðreisnar eru Hanna Katrín Friðriksson, áttundi þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og í þeirri seinni Sigmar Guðmundsson, tólfti þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Orri Páll Jóhannsson, tíundi þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Jódís Skúladóttir, tíundi þingmaður Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Miðflokkinn tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sjöundi þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, og í þeirri seinni Bergþór Ólason, áttundi þingmaður Norðvesturkjördæmis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert