Nýr samningur um tannlæknaþjónustu

Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samstarfssamning við Tannlæknafélag Íslands.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samstarfssamning við Tannlæknafélag Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi

Sjúkratryggingar Íslands hafa gert nýjan samning um tannlæknaþjónustu, segir í tilkynningu Stjórnarráðsins

Efni samningsins varðar forvarnir og tannlækningar barna til 18 ára aldurs, tannlækningar öryrkja og aldraðra en einnig tannlækningar vegna alvarlegra meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma annarra en tannréttinga, kemur fram í tilkynningunni. 

Samningurinn gildir til og með 31. janúar 2024.

Þá kemur jafnframt fram í tilkynningunni að Sjúkratryggingar Íslands og Tannlæknafélag Íslands hafi gert samstarfssamning um meðal annars endurskoðun gjaldskrár á samningstímanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert