Lýsa yfir óvissustigi vegna Skaftárhlaups

Um níu til tíu klukku­stund­um eft­ir að hlaupið nær hámarki …
Um níu til tíu klukku­stund­um eft­ir að hlaupið nær hámarki við Sveinstind má bú­ast við að jök­ul­hlaupið nái há­marki við þjóðveg­inn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna Skaftárhlaups.

Vatnshæð er farin að rísa í Skaftá og Eldvatni en hlaupið hefur enn ekki náð hámarki við Sveinstind. Um níu til tíu klukku­stundum eft­ir það má bú­ast við að jök­ul­hlaupið nái há­marki við þjóðveg­inn. 

Hljóp úr báðum kötlum 2021

Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort hlaupið komi úr Skaftárkatli vestari eða eystri. Árið 2021 hljóp úr báðum kötlunum og segir í tilkynningu frá almannavörnum að búast megi við svipuðum afleiðingum og þá.

„Brennisteinsvetnismengunar getur gætt þar sem hlaupvatn kemur undan jökli og getur skaðað slímhúð í öndunarfærum og augum auk þess sem árnar geta flætt yfir bakka og vegi sem liggja þeim nærri. Ferðafólki er eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert