Matarkarfan hlutfallslega lág

Verð á matvöru hefur farið hækkandi á undanförum mánuðum en …
Verð á matvöru hefur farið hækkandi á undanförum mánuðum en er hlutfallslega lágt ef horft er til umfangs einkaneyslu landsmanna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hlutfall matar og drykkjar af einkaneysluútgjöldum heimilanna var 13,3% á Íslandi árið 2022.

Þetta kemur fram í tölum frá Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins.

Ísland er þar með þrettánda lægsta landið í Evrópu þegar kemur að þessum lífsnauðsynjum þegar horft er á þennan mælikvarða. Lægst er hlutfallið á Írlandi (8,3%), í Lúxemborg (9,9%) og í Sviss (10,3%). Ef horft er til nágrannaþjóða Íslands þá er hlutfallið í Danmörku 11,8%, í Finnlandi 12,2%, 12,4% í Noregi og 12,6% í Svíþjóð. Langhæsta hlutfall einkaneyslu sem fer í mat og drykk er í Albaníu, eða 42,4%, og þar á eftir fylgja löndin á Balkanskaga með ríflega 30% hlutfall.

Nánar má lesa um málið laugardagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert