Svifryk verður yfir borginni næstu daga

Mælt er með því að viðkvæmir haldi sig innandyra og …
Mælt er með því að viðkvæmir haldi sig innandyra og börn séu ekki látin sofa úti. mbl.is/Kristinn

Mikil mengun hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu í dag og í gær. Á vefnum loftgæði.is má sjá rauðar og appelsínugular merkingar víðsvegar á svæðinu.

Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir, doktor í lýðheilsuvísindum og loftgæðasérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að búast megi við að ástandið verði svipað næstu daga.

Þurrt veður og sandstormur sökudólgarnir

Ragnhildur segir loftgæðin á höfuðborgarsvæðinu síðastliðna daga vera svo vegna sandstorms. Veður hafi verið kalt og þurrt undanfarið. Hún útskýrir að það hafi í för með sér að jarðvegur á bæði Suðurlandi og hálendinu þorni upp og blási svo yfir borgina.

Ragnhildur segir umferðina einnig stuðla að vandamálinu. Svifryk hafi áhrif á loftgæðin. Sandstormurinn eigi þó mesta sök.

Rigning ekki í kortunum

Aðspurð segir Ragnhildur þetta munu lagast þegar það fer að rigna eða vindáttin breytist. Nú sé norðaustanátt sem blási ryki frá hálendinu.

„Þetta er svolítið erfitt í hægum vetrarstillum þegar það er svona þurrt. Ég sé ekki í fljótu bragði að það verði einhver rigning fyrr en á fimmtudag á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hún. Þetta geti því varað næstu daga.

Viðkvæmir og börn haldi sig innandyra

Ragnhildur mælir með því að fólk fylgist með loftgæðum inni á loftgæði.is. Betra sé að viðkvæmir haldi sig innandyra og vari sig á að stunda líkamsrækt úti. Hún segir að betra sé að forðast að láta börn sofa úti í vagni á meðan loftgæðin eru rauðmerkt inni á síðunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert