Hættustigi aflýst á Seyðisfirði

Hættustigi aflýst á Seyðisfirði.
Hættustigi aflýst á Seyðisfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veðurstofan hefur ákveðið að aflýsa hættustigi vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði frá í gær. Aflýsingin tekur gildi klukkan 19.00 í dag. 

Samtímis er rýmingum á Seyðisfirði aflétt og lokunum á Hafnargötu einnig. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. 

Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Austurlandi er þó enn í gildi.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að austan veðrið sem hófst aðfaranótt mánudags sé nú gengið niður að mestu. Mikið af snjó hafi tekið upp í neðri hluta hlíða, einkum við ströndina. Búast megi við skúrum og hlýindum fram eftir kvöldi, en svo stytti upp í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert