Köstuðu eggjum í Alþingishúsið

Eggjum var kastað í Alþingishúsið.
Eggjum var kastað í Alþingishúsið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nokkrum fjölda eggja var kastað í Alþingishúsið í morgun.

Þetta staðfestir Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, í samtali við mbl.is. Segir hún að því miður séu enn merki um eggjakastið á Alþingishúsinu.

Lögregla var viðstödd mótmæli barnanna í morgun.
Lögregla var viðstödd mótmæli barnanna í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nemendur grunnskóla mótmæltu

Nemendur í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu komu þar saman í morgun til að mótmæla aðgerðal­eysi stjórn­valda í mál­efn­um Palestínu. Lögregla var þá viðstödd.

„Það þarf að finna út úr því hvernig þetta verður þrifið,“ segir Ragna.

„Því að Alþingishúsið er viðkvæmt og þolir illa svona ágang.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert