Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því tvöfaldur næsta laugardag.
Einn heppinn miðahafi var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmar 430 þúsund krónur. Miðinn var keyptur í Lottó appinu.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en átta miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning.
Miðarnir voru keyptir í Lukku Láka í Mosfellsbæ, Olís Norðlingaholti í Reykjavík, tveir á lotto.is og fjórir miðar eru í áskrift.