Engar vörur til Nettó

Nettó verslanir má sjá víða um land.
Nettó verslanir má sjá víða um land. mbl.is

Nettó á Húsavík hefur ekki fengið sendar neinar vörur í dag vegna lokunar vega sökum veðurs. Varað er við mögulegum vöruskorti á Facebook-síðu verslunarinnar. 

„Í dag föstudag munum við því miður ekki fá vörur og því gætu hillur og kælar orðið tómir. Vonandi koma vörurnar á morgun,“ segir í tilkynningunni frá því um hádegi í dag.

Hillur voru aðeins byrjaðar að tæmast undir kvöld, en ekki tómar, að sögn Höllu Kolbeinsdóttur, starfsmanns verslunarinnar. Helstur munar um grænmeti og mjólkurvörur.

„Við fengum ekkert grænmeti í dag og mjólkin kemur ekki fyrr en á morgun. Við fengum engar sendingar í dag,“ segir Halla í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert