Eyjólfur ætlar ekki að bjóða sig fram

Eyjólfur Guðmundsson, fráfarandi rektor Háskólans á Akureyri.
Eyjólfur Guðmundsson, fráfarandi rektor Háskólans á Akureyri. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Eyj­ólf­ur Guðmunds­son, frá­far­andi rektor við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri, ætlar ekki að gefa kost á sér til embætt­is for­seta Íslands. Hann greinir frá ákvörðuninni á stuðningssíðu sinni á Facebook.

„Að höfðu ítarlegu samráði við fjölskylduna og ráðgjafa sem ég hef haft þá er það niðurstaða mín að bjóða mig ekki fram til forseta ...... að þessu sinni,“ skrifar Eyjólfur, sem útilokar ekki að bjóða sig fram til forseta í framtíðinni.

Eyjólfur þakkar stuðninginn og segir það von sína að næsti forseti muni skilja mikilvægi embættisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert