Bíða eftir niðurstöðu frá Landsrétti

Frá vettvangi rannsóknar í Kiðjabergi á Suðurlandi í apríl.
Frá vettvangi rannsóknar í Kiðjabergi á Suðurlandi í apríl. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson

Lögreglan á Suðurlandi bíður eftir niðurstöðu frá Landsrétti eftir að hafa kært þangað úrskurð Héraðsdóms Suðurlands sem hafnaði fyrir helgi beiðni lögreglu um áframhaldandi varðhald yfir litháískum karlmanni grunuðum um manndráp í sumarhúsi í Kiðjabergi.

Maðurinn er þó enn í haldi vegna annars dóms sem hann þarf að afplána.

Héraðsdómur Suðurlands samþykkti aftur á móti fyrir helgi beiðni lögreglunnar um farbann yfir öðrum litháískum karlmanni í málinu.

Landsréttur.
Landsréttur. mbl.is/Jón Pétur

Bíða eftir frekari gögnum 

Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir rannsókn málsins ganga vel. Beðið er eftir frekari gögnum og niðurstöðum úr hinum ýmsu rannsóknum, auk þess sem skýrslutökur eru enn í gangi.

Upp­haf­lega voru fjór­ir menn hand­tekn­ir þann 20. apríl en tveim­ur síðar sleppt.  Maður frá Lit­há­en á fer­tugs­aldri var úr­sk­urðaður lát­inn skömmu eft­ir komu viðbragðsaðila á vett­vang. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert