Hafnaði áframhaldandi gæsluvarhaldi

Frá vettvangi rannsóknar á Kiðjabergi á Suðurlandi þann 20. apríl.
Frá vettvangi rannsóknar á Kiðjabergi á Suðurlandi þann 20. apríl. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson

Héraðsdómari á Suðurlandi hafnaði beiðni lögreglu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir litháískum manni grunuðum um mann­dráp í sum­ar­húsi í Kiðjabergi í apríl. Hann gengur samt ekki lausum hala þar sem hann þarf að afplána útistandandi dóm.

Tveir lit­háísk­ir karl­menn sitja í gæslu­v­arðhaldi vegna gruns um mann­dráp í sum­ar­húsi í uppsveit­um Árnes­sýslu þann 20. apríl en gæslu­v­arðhald yfir þeim renn­ur út í dag.

Jón Gunn­ar Þór­halls­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á Sel­fossi, segir í sam­tali við mbl.is að lögreglan hafi farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir öðrum sakborningum en farbann yfir hinum.

Dómari féllst á farbannið en ekki á gæsluvarðhaldið.

Maðurinn situr af sér annan dóm

Búið er að kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og Jón Gunnar gerir ráð fyrir frekari vendingum fljótlega eftir helgi.

Maðurinn sem lögreglan vildi framlengja varðhald yfir átti aftur á móti annan dóm yfir sér. Hann gengur því ekki lausum hala, heldur mun þurfa að afplána þann dóm. 

„Maður var með útistandandi dóm og afplánun og hefur hana í beinu framhaldi,“ segir Jón en hann kveðst ekki vita meira um eldri dóminn.

Upp­haf­lega voru fjór­ir menn hand­tekn­ir þann 20. apríl en tveim­ur síðar sleppt. 

Maður frá Lit­há­en á fer­tugs­aldri var úr­sk­urðaður lát­inn skömmu eft­ir komu viðbragðsaðila á vett­vang. Málið er rann­sakað sem mann­dráp og seg­ir Jón Gunn­ar að rann­sókn­inni miði vel og að lög­regl­an sé kom­in með nokkuð góða mynd af því sem gerðist í sum­ar­hús­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert