Líf gefur ein kost á sér í oddvitann

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG.
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG. mbl.is

Framboðsfrestur í forvali Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs fyrir borgarstjórnarkosningar í vor rann út á miðnætti í gær en kjörnefnd bárust ellefu framboð. Aðeins er eitt framboð í efsta sæti framboðslistans, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flokknum. Forvalið fer fram 24. febrúar.

Frambjóðendur eru:

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi, 1. sæti.

Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi, 2. sæti.

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsnemi, 2.-4. sæti.

Hermann Valsson grunnskólakennari, 3. sæti.

Björn Teitsson blaðamaður, 3. sæti.

Þorsteinn V. Einarsson æskulýðsfulltrúi, 3. sæti.

Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari, 3.-5. sæti.

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm leikkona, 4. sæti.

René Biasone sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, 4. sæti.

Jakob S. Jónsson leiðsögumaður, 4.-5. sæti.

Ragnar Karl Jóhannsson uppeldis- og tómstundafræðingur, 4.-5. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert