Fyrrverandi forstjóri Interpol, Meng Hongwei, sem var handtekinn þegar hann var í heimsókn í Kína árið 2018, var í dag dæmdur í rúmlega 13 ára fangelsi fyrir mútuþægni. Meira
Fyrrverandi forstjóri Interpol, Meng Hongwei, játaði við réttarhöld í Kína í dag að hafa þegið 2,1 milljón Bandaríkjadala, 266 milljónir króna, í mútur. Meng var áður vararáðherra almannaöryggismála Kína. Meira
Grace Hongwei, eiginkona Meng Hongwei, fyrrverandi forstjóra Interpol sem kínversk yfirvöld hyggjast kæra fyrir spillingu, hefur verið veitt hæli í Frakklandi. Lögfræðingur hennar, Emmanuel Marsigny, staðfesti þetta við Reuters-fréttaveituna. Meira
Kínversk yfirvöld handtóku formlega Meng Hongwei, fyrrverandi forstjóra Interpol, vegna gruns um að þiggja mútur. Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir meinta spillingu og verður líklega ákærður fljótlega. Meira
Kínversk yfirvöld ætla að ákæra Meng Hongwei, fyrrverandi forstjóra Interpol, fyrir að taka við mútum. Þá verður hann jafnframt sviptur aðild sinni að kínverska kommúnistaflokknum og rekin úr öllum stöðum sem hann gegndi fyrir kínversk stjórnvöld. Meira
Kim Jong-yang hefur verið kjörinn nýr forstjóri Interpol á ársfundi alþjóðalögreglunnar í Dúbaí. Mjög hefur verið tekist á um hver ætti að hreppa hnossið undanfarna daga en til stóð að Rússinn Alexander Prókoptsjúk tæki við embættinu. Meira
Eiginkona fyrrverandi forstjóra Interpol, Meng Hongwei, óttast um líf hans og eigið öryggi og sakar ríkisstjórn Kína um miskunnarleysi en Meng var handtekinn nýverið. Meira
Fyrrverandi forstjóri alþjóðalögreglunnar Interpol, Meng Hongwei, er til rannsóknar fyrir að hafa þegið mútur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem ráðuneyti almannaöryggis í Kína sendi frá sér í morgun. Meira
Meng Hongwei hefur sagt upp störfum sem forseti alþjóðalögreglunnar Interpol. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Meira
Meng Hongwei, forseti Interpol, liggur undir grun fyrir lögbrot, að því er segir í tilkynningu frá yfirvöldum í Kína. Lyndistákn (e.emoji) af hnífi voru meðal síðustu skilaboðanna sem Grace Meng, eiginkona Mengs Hongwei, fékk áður en hann hvarf. Meira
Eiginkona Meng Hongwei, yfirmanns alþjóðalögreglunnar Interpol, hefur hvatt þjóðir heimsins til að bregðast við hvarfi hans. Hún óttast að líf hans sé í hættu. Grace Meng tjáði sig um málið í frönsku borginni Lyon þar sem höfuðstöðvar Interpol eru til staðar. Meira
Alþjóðalögreglan Interpol hefur óskað útskýringa frá kínverskum stjórnvöldum vegna hvarfs Meng Hongwei, forseta stofnunarinnar. Hongwei hefur nú bæst í hóp margra opinberra aðila, viðskiptajöfra og dægurstórstjarna sem hafa horfið í vikur eða mánuði í Kína. Meira
Franska lögreglan hefur hafið rannsókn á hvarfi Meng Hongwei, kínversks yfirmanns alþjóðalögreglunnar Interpol. Meira