Rúmlega 100 grindhvalir voru reknir frá landi við Bug, austan við Ólafsvík á Snæfellsnesi, fyrr í dag. Stuttu síðar syntu þeir aftur á land við hafnargarðinn á Rifi. Snorri Rafnsson sjómaður rak hvalina fyrstur í morgun frá strönd og lét björgunarsveitina vita þegar þeir sneru aftur til lands. Hann segir hvalina helsærða og áttavillta.