Göngubrú á háskólasvæðinu við Alþjóðaháskólann í Flórída (Florida International University) hrundi skyndilega síðdegis. Fimm til sex bílar eru kramdir undir brúnni og fjöldi fólks er slasaður. Bandarískir fjölmiðlar hafa eftir lögreglunni að nokkrir séu látnir, en fjöldi látinna hefur ekki fengist staðfestur.