Hemlunarbúnaður er einn mikilvægasti öryggisþáttur hvers ökutækis og um leið viðhaldsþáttur sem ekki má vanrækja. Þetta segir Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, en í dag tóku þrjú lögregluembætti í notkun hemlunarprófara sem nýttur verður til fagmannlegra eftirlits.