Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, tók í dag pólitíska ábyrgð á gróðureldunum sem kviknuðu á mánudagskvöld í og við Aþenu og sem kostað hafa 87 manns hið minnsta lífið. „Ég leyni því ekkert að tilfinningar mínar eru blendnar,“ sagði Tsipras.