Rennsli í Skaftá við Sveinstind er enn að aukast og mælist rennslið nú 1.350 rúmmetrar á sekúndu. Samkvæmt upplýsingum frá náttúruvársérfræðingi á Veðurstofunni hefur ferillinn beygt af og er vatn farið að renna út í hraunið og því verði að taka rennslistölum með varúð.