Grindhvalatorfan sem hefur haldið til í Kolgrafafirði í dag hefur oft verið nærri landi. Einn hvalurinn hafði synt of hátt upp í fjöruna og sat þar fastur þar til menn á bátum komu honum til aðstoðar en töluverður fjöldi fólks var í firðinum í dag að fylgjast með smáhvölunum.