Álftin sem bjargað var af Urriðakotasvatni í gær er óðum að braggast. Hún hefur eytt miklum tíma í að snyrta sig og þrífa eftir komuna í Húsdýragarðinn. Þar dvelur hún í fuglabúri sem gjarnan er kallað Styrmishöll. Ekki er ljóst hvenær hægt verður að sleppa henni út í náttúruna að nýju.