Einn lést og á þriðja tug manna slasaðist þegar öflugur jarðskjálfti, sem var 8,0 að stærð, reið yfir norðurhluta Perú í gærmorgun. Upptök skjálftans voru í afskekktu héraði í Perú, en skjálftans varð þó líka vart í höfuðborginni Lima þar sem óttaslegnir íbúar þustu út á göturnar.