Talsvert hefur verið um blæðingar á vegum landsins einkum í uppsveitum Árnessýslu og einnig við Þorlákshöfn á síðustu dögum. Tjaran í vegklæðningunni bráðnar í hitanum sem hefur ríkt undanfarið með þeim afleiðingum að vegurinn verður háll, hætta getur skapast og vegklæðningin skemmst.