Mbl.is fékk á dögunum ábendingu um hættulegar aðstæður sem hefðu myndast við gangbraut yfir Strandveg í Grafarvogi. Hátt gras í vegkantinum byrgir ökumönnum sýn og á meðfylgjandi mynd sést, eða sést ekki, þar sem 8 ára gamall drengur er að hjóla að gangbrautinni.