Sárið sem myndaðist við skriðuna í Reynisfjalli í nótt er gríðarstórt og ljóst að bergið er afar laust í sér. Brimið hefur rifið hluta af lokunum, sem settar voru upp í fjörunni í morgun, á haf út en þær hafa þó að mestu verið virtar af ferðamönnum á svæðinu að sögn lögreglu.