Þrettánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fer fram um helgina. Mikil eftirvænting ríkir, enda deildin búin að vera í fríi meðan á landsleikjahléinu stóð. Þá er José Mourinho mættur aftur eftir tæpt ár án félags, en hann var ráðinn í stað Mauricio Pochettino hjá Tottenham.