Björgunarsveitarmenn á Skagaströnd hafa síðasta sólarhringinn reglulega þurft að brjóta ís og moka upp úr smábátum í höfninni í bænum, en talin var hætta á að bátarnir færu niður þar sem snjór og ís þyngdi þá mikið. Reynir Lýðsson, formaður björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd, segir í samtali við mbl.is að menn séu aftur á leið út núna.