Öllum skólum í Frakklandi verður lokað frá og með næsta mánudegi. Emmanuel Macron Frakklandsforseti tilkynnti þetta í sjónvarpsávarpi kvöld og segir hann kórónuveirufaraldurinn sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir nú sem heimsfaraldur vera mestu lýðheilsuógn Frakklands í heila öld.