Ragnar Freyr Ingvarsson stendur í ströngu þessa dagana og er yfirlæknir á COVID-19-göngudeild Landspítalans. Við sjáum aðra hlið á Ragnari í nýjum matreiðsluþáttum í Sjónvarpi Símans Premium. Þar ferðast hann til Frakklands þar sem hann kynnir sér matar- og vínmenningu heimamanna í heillandi sjónvarpsþáttum.