Knattspyrnumaðurinn ungi Christian Pulisic var til umræðu í þættinum Völlurinn á Síminn Sport þar sem þeir Bjarni Þór Viðarsson og Freyr Alexandersson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar. Pulisic skoraði í 3:2-sigri Chelsea gegn Crystal Palace í vikunni og hefur vakið verksuldaða athygli fyrir frammistöðu sína undanfarið.