Allt að 300 þúsund íbúar höfuðborgar Líbanons, Beirút, eru heimilislausir í kjölfar tveggja stórra sprenginga á hafnarsvæði borgarinnar í gær. Þetta segir ríkisstjóri Beirút og bætir við að tjónið sem varð í sprengingunum hlaupi á þremur til fimm milljörðum bandaríkjadala.