Kínversk stjórnvöld greindu nýverið frá því að bóluefni við kórónuveirunni sem þróað var þar í landi geti verið fáanlegt fyrir kínverskan almenning strax í nóvember. Þetta sagði Wu Guizhen, fulltrúi stjórnvalda, í viðtali við kínverska ríkisútvarpið. Hún greindi einnig frá því að hún hafi fengið bólusetningu við kórónuveirunni í apríl á þessu ári og sagðist henni hafa liðið vel síðan.