Hannes Rúnarsson atvinnubílstjóri var á meðal þeirra fjögurra sem fengu á sig snjóflóð á Öxnadalsheiði um klukkan tíu í gærkvöldi. Voru fjórmenningarnir að vinna að því að moka bíl í gegnum um 150 metra skafl á veginum, en í bílnum var barnafjölskylda.