Ekki er hætt við því að Ísland detti úr tísku í alþjóðlegri ferðaþjónustu eftir að fólk fer að ferðast að nýju. Þetta er mat Steins Loga Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Bláfugls og framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Icelandair. Þetta kemur fram í viðtali við Stein Loga í þætti Dagmála.